Svona tekur MacDonalds mynd af hamborgara

Skyndibitarisinn sýnir þér hvað gerist á bak við tjöldin

Flestir unnendur skyndibita þekkja það að maturinn sem þú pantar þér lítur sjaldnast út eins og lystaukandi og glæsilegar myndir á matseðlinum. Yfirleitt er munurinn talsverður.

Í meðfylgjandi myndbandi sýnir skyndibitarisinn MacDonalds af hverju hamborgararnir þeirra eru allt örðuvísi á myndum og þegar þú pantar þér á skyndibitastað.

Myndbandið sem er ansi nákvæmt sýnir hversu mikla vinnu matarhönnuður leggur í það að sýna hamborgarann í sem bestu ljósi og á eins lystaukandi hátt og hægt er. Það virðist taka margar klukkustundir að taka eina mynd af hinum fullkomna hamborgara, en engu að síður þar samt að fínpússa myndirnar aðstoð myndvinnsluforrita.

The Telegraph greinir frá



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.