Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
19:05 › 19. júní 2012
Maðurinn sem komst í fréttirnar vegna 45 kílóa pungs afþakkaði boð um að ókeypis aðgerð til þess að losa hann við meinið.
Bandaríska dagblaðið The Las Vega Review Journal greinir frá því að Wesley Warren Jr. hefði neitað aðgerð sem sjónvarpsþátturinn Dr. Oz Show bauðst til að kosta.
Warren segist ekki hafa neitað aðgerðinni af ótta við að glata frægðinni vegna risapungsins heldur er hann hræddur um að láta lífið á skurðborðinu. „Hver vill lifa svona,“ spurði hann. „Ég vil ekki láta lífið á skurðborðinu.“
Pungurinn hefur gert það að verkum að Warren helst ekki í vinnu og á hann erfitt með að pissa eðlilega. Aðgerðinni fylgir sú áhætta að læknarnir gætu þurft að fjarlægja getnaðarlim hans og eistu ef þeim tekst ekki að stöðva blæðinguna.

Hemmi Gunn fallinn frá