„Fólk er hrætt við andlitið mitt“

Blöðrumaðurinn segir frá lífshlaupi sínu

Þegar Chandra Wisnu gekk að eiga eiginkonu sína Nanik fyrir 33 árum, í Indónesíu, blasti lífið við honum. Hann var ungur, myndarlegur og vel menntaður og kominn af góðum ættum.

Skömmu eftir brúðkaupið fór að síga á ógæfuhliðina.

Hann hafði tekið eftir því að litlar blöðrur höfðu myndast á bakinu skömmu fyrir brúðkaupið. Þá var hann nítján ára en fimm árum síðar hafði ástandið versnað til muna og þegar hann var 32 ára höfðu blöðrurnar þakið allan líkamann.

Wisnu vonast til að finna lækningu, sérstaklega af því að börnin hans tvö virðast vera með sömu einkenni.

Fjallað er um Wisnu í myndinni Bubble Skin Man sem sýnd verður 20. júní á TLC-sjónvarpsstöðinni.

„Fólk er hrætt við andlitið mitt og óttast að það smitist,“ sagði hann við News.com.au. „Ég forðast því fólk og fer örsjaldan út. Þegar ég geri það þá hyl ég andlitið mitt,“ segir Wisnu sem hefur þó ekki glatað eiginkonu sinni þrátt fyrir ástandið.

„Þú ert ennþá myndarlegur,“ segir hún á einum stað í myndinni sem sýnd verður á TLC.




Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.