Hinn 39 ára gamli Raymond Dolin hefur undanfarið verið á puttaferðalagi þvert um Bandaríkin og nýtt tímann um leið til að skrifa ferðadagbók um ævintýri sín. Vinnutitill þeirra bókar er „The Kindness of America“ eða Vinsemd Ameríku. Það þykir því nánast lygilega mikil kaldhæðni að Dolin var á laugardagskvöld skotinn af ókunnugum manni í Montana. Svo virðist sem árásin hafi verið með öllu tilefnislaus.
Dolin mun hafa verið að húkka far úti á þjóðvegi þegar rauður pallbíll stöðvaði fyrir honum. Bílstjórinn greip hins vegar til vopna og skaut Dolin.
Blessunarlega þá var ekki öll vinsemd úr Montana þetta kvöldið því vegfarandi kom Dolin til bjargar og kom honum undir læknishendur.
Hinn 52 ára gamli árásarmaður, Charles Lloyd Danielson, var handtekinn af lögreglu síðar um kvöldið.
„Þessi árás virðist hafa verið gerð af algjöru handahófi. Þessir menn þekktust ekki, höfðu aldrei hist og við vitum ekki hvert tilefni árásarinnar var. Við vitum hreinlega ekki af hverju þetta gerðist,“ er haft eftir talsmanni lögreglunnar um málið.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum