42 ára þunglyndur matarfíkill með víðáttufælni, sem var tiltölulega grannur í æsku, vaknaði upp með andfælum, þegar hann komst að því að hann væri feitasti maður í heiminum. Lundúnabúinn Keith Martin, sem er 368 kíló, hefur ekki farið út úr húsi frá 11. september 2001. Hann hefur verið heima að lesa, horfa á sjónvarpið, spila Playstation og borða síðasta áratuginn, en er núna kominn með nóg.
„Áfall“ að vera heimsins feitastur
„Áfallið við að komast að því að ég væri feitasti maður í heimi var það sem ég þurfti til að gera eitthvað í þessu,“ segir hann, í viðtali við Daily Mail í gær, á megrunarlausa deginum.
Hann kennir sjálfum sér um hvernig komið er fyrir honum, en engu að síður var aðdragandinn andlegir erfiðleikar. Þegar hann var 16 ára gamall lést móðir hans óvænt og hann byrjaði að borða sér til huggunar. „Sjálfsálit mitt var svo lítið - og hafði alltaf verið - að mér var sama um sjálfan mig. Ef ég lít til baka yfir farinn veg finnst mér ljóst að ég hef alltaf verið þunglyndur. Ég er með víðáttufælni - er hræddur við að vera á opinberum stöðum - og ég býst við að ég hafi alltaf verið það, án þess að hafa fengið meðferð við því,“ segir hann.
Matseðill feitasta manns í heimi
„Ég borðaði 20 þúsund kaloríur á dag,“ segir Martin, og segir frá dæmigerðu mataræði:
Morgunmatur: Eitt bréf af beikoni, sex pylsur, sex egg og slatti af ristuðu brauði og baunum. Hádegisverður. Sama og í morgunmat, en að auki samlokur. Kvöldverður: Tvær stórar pítsur eða þrjú keböb. Snarl milli mála: Kexpakkar, nammi, kökur og súkkulaði í fjölskyldustærð. Kvöldsnarl fyrir svefninn: Fjórar samlokur með skinku eða beikoni. Drykkir Tveir lítrar af gosi og sex kaffibollar með sykri.
Megrunin
Nú borðar Martin aðeins 1.500 kaloríur daglega. Það gera fjórar brauðsneiðar á dag, ásamt einni tilbúinni máltíð.
„Á vissan hátt líður mér ekkert öðruvísi en þegar ég var táningur. Ég er sama manneskjan. Nema núna er ég með þennan risalíkama sem mér er stöðugt illt í. Ég vil bara vera hamingjusamur, án þess að þurfa mat til þess. Ég vil geta farið með hundinn minn Cheyanne í gönguferð. Ég myndi fara með hana hvert sem hún vildi,“ sagði Martin og grét.
Læknar segja að hann eigi mest átta ár eftir ólifuð ef hann léttir sig ekki verulega.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013