Þingmenn varalita sig og halda listasýningu

Vilja vekja athygli á málum sem stjórnin hefur klárað

Þingmenn Samfylkingarinnar hafa hver á eftir öðrum varalitað sig og tekið sopa af plastmáli og gefið á sýningu sem Ungir Jafnaðarmenn standa fyrir í dag. Sýningin er haldin til að vekja athygli á þeim málum sem ríkisstjórnin hefur komið í gegn á yfirstandandi kjörtímabili. Sýningin ber heitið Mál málanna og er um listasýningu að ræða.

Í tilkynningu frá Ungum Jafnaðarmönnum kemur fram að sýningunni er ætlað að vekja athygli á því að 116 þingsályktunartillögur og 402 lög og lagabreytingar hafa verið samþykktar á kjörtímabilinu. Guðrún Jóna Jónsdóttir formaður Ungra Jafnaðarmanna, flytur ávarp en að því búnu munu listamennirnir, bæði ráðherrar og þingmenn, fjalla um verk sín. Sýningin verður opnuð klukkan 16.45 í dag á efri hæðinni á kaffihúsinu Sólon í Bankastræti.

Ætla má að hugmyndin á bak við listasýninguna séu kaup Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri á plastmáli sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra drakk af þegar hún var gestur í útvarpsþætti á Rás 2. Fulltrúum Sambands ungra Sjálfstæðismanna, sem reyndu að kaupa málið af Sjónlistamiðstöðinni, hefur sérstaklega verið boðið á sýninguna.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.