19 ára og 400 kíló

30 manns þurfti til að koma Georgiu Davis á spítala

Þrjátíu vinnupalla og um þrjátíu verkamenn og sjúkraliða þurfti til að koma hinni 19 ára gömlu Georgiu Davis á spítala í heimalandi sínu, Wales. Hún hafði vegna offitu verið föst á heimili sínu í hálft ár þegar ljóst varð að líf hennar væri í hættu. Það tók hópinn nærri átta tíma að koma Georgiu, sem vegur um 400 kíló, inn í sjúkrabíl en hópurinn þurfti meðal annars að brjóta stórt op á útvegg og byggja brú frá húsinu til bráðabirgða. Ekki þótti vinnandi vegur að reyna að koma henni niður á jarðhæð og út úr húsinu með hefðbundnum leiðum.

Dregið fyrir

Settur var upp byggingarkrani ef á þyrfti að halda en hann var þó ekki notaður þegar á hólminn var komið. Breski vefmiðillinn Daily Mail greinir frá þessu en þar segir frá því að flutningurinn hafi farið fram fyrir luktum dyrum; tjöld voru sett upp til að virða friðhelgi einkalífs stúlkunnar. „Þetta er ekki „freak show“ sagði lögregluþjónn við fjölmiðla en talið er að kostnaðurinn hafi hlaupið á mörg hundruð þúsund krónum.

Fékk lungnabólgu

Georgia er nú undir ströngu eftirliti lækna en hún þjáist af sykursýki, nýrnasjúkdómum, bakeymslum og skertri lungnastarfsemi. Talið er að lungnabólga hafi valdið því að ákveðið var að flytja hana á sjúkrahús. „Hún sagði dóttur minni að hún væri með sýkingu auk þess sem hún væri með bakverki,“ segir nágrannakona fjölskyldunnar en dóttir hennar er vinkona Georgiu. „Hún bar sig samt vel,“ segir hún og bætir við að Georgia sé sérlega vingjarnleg stúlka.

Fjölmargir vinir Georgiu á Facebook hafa sent henni baráttukveðjur.

Klukkutíma á klósettið

Líkamsþyngdarstuðull (BMI) stúlkunnar er 142,3 en fólk sem er með hærri stuðul en 30 er sagt glíma við offitu. Fjölskylduvinur sagði við fjölmiðla að hann vonaðist til að hægt væri að hjálpa stúlkunni. „Það sem fólk sér er ung kona sem misst hefur stjórn á þyngdinni vegna ofáts. En undir niðri er mjög sæt og indæl lítil stúlka.“

Hann bætti við að svo virtist sem Georgia refsaði sjálfri sér, einhverra hluta vegna, með því að borða á sig gat. Til stendur að hún fái yfirgripsmikla aðstoð, bæði andlega aðstoð og ráðgjafa sem hjálpa henni að leggja af.

Georgia liggur í rúminu allan daginn, enda getur hún ekki annað. Eina hreyfingin sem hún fær er þegar hún þarf á klósettið. Hún hefur sjálf sagt að ein slík ferð geti tekið allt að klukkutíma – en til að komast á salernið þarf hún að fara um einn gang.

Missti 100 kíló en þyngdist aftur

Þess má geta að ekki er langt síðan Georgia reyndi að ná tökum á þyngdinni með því að stunda stífar æfingar á líkamsræktarstöð, í bænum Aberdare. Það gekk þó ekki lengi þar sem hún réð illa við að ganga frá heimili sínu og til baka, um þriggja kílómetra leið. Hún deildi því með vinum sínum á Facebook að hún væri á réttri leið. „En ég neita að trúa því að frá húsinu mínu að Monk Street sé bara ein míla,“ skrifaði hún. Á sama tíma fylgdi hún stífum leiðbeiningum um mataræði en gafst upp vegna þess hve skammtarnir voru litlir. „Þetta mataræði hæfir mér ekki, en ég prófaði allavega,“ sagði hún vinum sínum en árið 2008 var hún þyngsti unglingurinn á Bretlandseyjum. Þá vó hún tæplega 210 kíló.

Í kjölfarið var hún send til Bandaríkjanna þar sem hún fór í búðir fyrir fólk sem glímir við alvarlega offitu. Þar léttist hún um nær helming.

Ógæfan tók aftur við þegar hún kom heim til Wales. Hún bætti hratt á sig 100 kílóum á nýjan leik og hélt áfram að fitna. „Mamma sagðist ekki hafa tíma til að elda hollan mat, svo oft fékk ég djúpsteiktan fisk og franskar,“ er haft eftir Georgiu.

Reynir að hugsa ekki of mikið um þetta

Móðir Georgiu er Lesley Davis, sem sjálf er 114 kíló að þyngd. Eins og sjá má á myndunum hefur Georgia alltaf verið of þung. Móðirin segist áfellast sjálfa sig vegna þess hvernig fyrir dóttur hennar er komið. „Að sjálfsögðu er þetta að hluta mér að kenna. Hún getur ekki gengið stuttan spöl nema mæðast. Auðvitað hef ég miklar áhyggjur,“ segir hún við fjölmiðla.

Læknar hafa sagt við stúlkuna að hún muni tæpast ná tvítugu ef hún snúi ekki við blaðinu. Þeir gefa henni með öðrum orðum ekki langan tíma nema hún breyti um lífsstíl. Sjálf hefur hún sagt að hún hafi ekki þrótt til að takast á við vandamálið. „Ég reyni að hugsa ekki of mikið um það. Þá verð ég áhyggjufull og fer að borða enn meira. En ég veit að þetta er orðið alvarlegt. Ég er líklega á góðri leið með að borða mig í hel en ég ræð bara ekki við þetta.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.