Diane Tran, 17 ára afburðanemandi í Texas, Bandaríkjunum, þurfti að dúsa eina nótt í fangelsi fyrir að hafa misst af of mörgum tímum í skólanum sínum.
Hún sækir Willis-framhaldsskólann en hún tekur þátt í að halda uppi tveimur systkinum sínum og stundar því fulla vinnu og hlutavinnu meðfram skóla.
Í viðtali við KHOU-11-sjónvarpsstöðina segist Tran oft verða þreytt í skólanum.
„Hún fer beint í vinnu eftir skóla,“ sagði einn af bekkjarfélögum hennar við KHOU-11. „Hún vakir til morguns til að klára heimalærdóminn.“
Foreldrar hennar eru skilin og býr Fran með vinnuveitendum sínum.
Samkvæmt lögum í Texas eiga nemendur hættu á fangelsisvist ef þeir með tíu óútskýrðar fjarverur á sex mánaða tímabili.
Tran var handtekin í dómsal á miðvikudag og vistuð í fangaklefa yfir nótt eftir að hafa fengið viðvörun frá dómara í apríl síðastliðnum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013