Jokevision 2012 vekur lukku

Fimmtán ára piltar gera grín að Eurovison með góðum árangri

Þeir Ágúst Elí Ásgeirsson og Jakob van Oosterhout eru fimmtán ára gamlir piltar frá Mosfellsbæ og Reykjavík sem reka saman kvikmyndafyrirtækið JÁ Myndir. Þeir segjast hafa gert myndbönd saman í fjölmörg ár, en hægt er að skoða myndböndin þeirra hér á Youtube. Í meðfylgjandi myndbandi taka þessir upprennandi grínistar fyrir nokkur vel valin lög úr Eurovison og sýna á sinn eigin máta undir yfirskriftinni Jokevision 2012. Óhætt er að segja að þeir eigi framtíðina fyrir sér sem eftirhermur.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.