Heimsmethafi í aftur á bak hlaupi

„Þú prófar einu sinni og getur ekki hætt“

Garret Doherty er heimsmethafi í sinni grein en hann mun þó ekki keppa á Ólympíuleikunum í sumar því hann hleypur einungis aftur á bak.

Þessi þrjátíu og þriggja ára gamli Íri er sá sneggsti í heiminum þegar kemur að því að hlaupa aftur á bak en hann hleypur rúman einn og hálfan kílómeter á rúmlega sjö mínútum.

Eftir að hafa verið krýndur heimsmeistari þriðja árið í röð stefnir hann á að verja titilinn þriðja árið í röð í Manchester, Englandi, á morgun.

Doherty heillaðist af greininni fyrir þremur árum þegar hann ákvað að hlaupa aftur á bak til þess að komast hjá því að fá sólargeislana beint framan í sig.

Þrátt fyrir augngotur vegfarenda þátt lætur hann ekkert á sig fá og komst fljótlega að því eftir hann hóf að iðka greinina, að hann getur hlaupið nánast jafn hratt aftur á bak og hann myndi gera með því að hlaupa með hefðbundinni aðferð.

„Aftur á bak hlaup er eins og fíkniefni. Þú prófar einu sinni og getur ekki hætt,“ segir Doherty um sportið.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.