Rjúpa reynir innbrot

Kostulegar aðfarir

Venjan er að menn elti rjúpur um fjöll og firnindi en ekki að rjúpa reyni allt hvað getur til að komast í nánd við mannfólkið.

Það gerðist þó á Reykhólum fyrr í þessum mánuði þegar rjúpnakarri einn ætlaði sér inn í íbúðarhús hvað sem tautaði og raulaði. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu en líklegt er að hann hafi aðeins séð eigin spegilmynd í skyggðum rúðum hússins. Hann hafi því ætlað að bola þessum óvelkomna keppinauti í burtu, en rjúpnakarrar eru þekktir fyrir að verja óðöl sín af mikilli hörku á vorin.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.