Rekinn úr skóla vegna klippingar

Vildi votta uppáhalds körfuboltamanni sínum virðingu

Tólf ára bandarískur piltur að nafni Patrick Gonzalez var rekinn úr skóla vegna klippingar sinnar en Gonzalez rakaði andlit körfuboltamannsins Matt Bonners á höfuð sitt. Pilturinn segist halda með San Antonio Spurs og segir að Bonner sé í uppáhaldi hjá sér vegna þess að hann er rauðhærður, rétt eins og hann sjálfur.

Patrick var umsvifalaust rekinn úr Woodlake Hills gagnfræðiskólanum en klippingin þótti óviðeigandi. Hann fékk svo að snúa aftur í skólann eftir að hann hafði rakað af sér hárið.

Leikmenn San Antonio Spurs heyrðu um málið og ákváðu að bjóða Patrick og fjölskyldu hans á næsta leik liðsins. „Hefði ekki verið hægt að færa hann aftast í skólastofunni?“ sagði Bonner um málið í viðtali við Fox fréttastöðina. „Þá myndi enginn sjá það; það væri ekki truflun. Annars þá er búið að skemma það indælasta sem aðdáandi hefur nokkurn tíma gert fyrir mig.“

Þá sagði Bonner einnig í viðtali við AP fréttaveituna: „Við verðum að styðja við bakið á þeim rauðhærðu, sérstaklega í NBA-deildinni.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.