Þegar tólf ára stúlka sýndi móður sinni einkunnaspjaldið sitt á mánudag brást móðirin afar ill við. Henni fannst einkunnirnar afar slæmar og ákvað að refsa dóttur sinni. Nágrannar þeirra í bænum Fridley, í Minnesota í Bandaríkjunum, horfðu á stúlkuna taka spretti fyrir utan heimili þeirra en hún var klædd í hlýrabol og bleiu sem móðir hennar hafði skipað henni að fara í.
Hún skipaði einnig dóttur sinni að hirða rusl í hverfinu og hafði rakað af henni hárið.
Það voru nágrannarnir sem gerðu lögreglu viðvart sem handtók 38 ára gömlu móðurina og kærasta hennar. Voru þau ákærð fyrir að beita stúlkuna harðræði. Lögreglustjórinn í Fridley sagði móðurina hafa verið orðlausa þegar hún var handtekin. Sagðist hún ekki skilja hvers vegna lögreglan skipti sér af því hvernig hún refsaði barni sínum, að því er fram kemur á vef bandaríska dagblaðsins StarTribune.
Þetta er víst ekki í fyrsta skiptið sem stúlkunni er refsað á þennan máta. Fyrir mánuði sá nágranni hana og yngri systur hennar úti að tína rusl og báðar í bleium.

Hemmi Gunn fallinn frá