Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
22:05 › 10. maí 2012
Lögreglan í borginni Kemah, Bandaríkjunum, handtók karlmann sem var nakinn á einhjóli því hann truflaði ökumenn.
Lögreglustjórinn Greg Rikard sagði í samtali við fjölmiðla vestanhafs að hinn 45 ára gamli Joseph Glynn Farley hefði ekki verið ölvaður þegar hann var handtekinn á einhjólinu á miðvikudag.
Farley sagði lögreglunni að hann kynni vel við þá tilfinningu sem fæst af því að vera nakinn á einhjóli. Lögreglan kærði Farley fyrir ósæmilega hegðun á almannafæri.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013