ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Sjónvarpskona bitin í andlitið

Flýtt í lýtaaðgerð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:00 › 9. febrúar 2012

Reynd sjónvarpskona í Denver í Colorardo, Bandaríkjunum var flutt í flýti á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir lýtaaðgerð eftir að hundur beit hana í andlitið við upptöku á sjónvarpsþætti.

Hundurinn heitir Max en hann beit í andlit Kyle Dyers þegar hún ætlaði að klappa honum í morgunþætti á KUSA-TV-sjónvarpstöðinni í gær.

Dyer hefur starfað í fimmtán ár hjá stöðinni. Hún fór í aðgerð í gær og verður frá vinnu í nokkrar vikur á meðan hún jafnar sig.
Dýraeftirlitið tók hundinn eftir atvikið og var eigandi hans, Michael Robinson, sektaður.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?