Kínverskir fjölmiðlar greina frá nýfæddum dreng sem er sjö kíló og er mögulega þyngsti nýburi Kína.
Drengurinn heitir Chun Chun og er tvöfalt þyngri en meðal nýburi. Hann fæddist í Xinxiang borg í Henan-héraði.
Foreldrar hans voru að vonum afar hamingjusamir vegna komu drengsins í heiminn en stærð hans kom þeim þó á óvart.
„Konan mín var ekkert frábrugðin öðrum óléttum konum. Hún borðaði ekki né drakk meira en góðu hófi gegnir. Samt sem áður fæddi hún svona stóran og feitan dreng,“ sagði faðir hans Han Jingang.
Móðir drengsins, Wang Yujuan, segir sex ára gamla dóttur parsins hafa verið rúmlega fjögur kíló þegar hún fæddist. Þess vegna átti hún ekki von á svona stóru barni.
„Mér fannst ég vera aðeins klaufalegri á þessari meðgöngu en þegar ég gekk með dóttur mína. Maginn var stærri en ég bjóst aldrei við sjö kílóa barni.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
