ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Lét 4 ára son sinn hlaupa nakinn í nístingskulda

Faðir sem reynir að herða son sinn upp er gagnrýndur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:28 › 8. febrúar 2012

Þessi fjögurra ára kínverski drengur var látinn hlaupa á nærbuxunum í þrettán gráðu frosti í New York, Bandaríkjunum. Faðir hans tók atvikið upp á myndband og birti það á myndbandavefsíðunni YouTube. Faðirinn heitir He Liesheng og er fjörutíu og fjögurra ára gamall.

Hann skipaði syni sínum, He Yide, að hlaupa í fimm mínútur og gera armbeygjur í nístingsfrosti, þrátt fyrir að drengurinn skylfi úr kulda og grátbæði föður föður sinn um faðmlag.

Faðirinn kallar þessa uppeldisaðferð arnarpabba, eða Eagle Dad.

„Þegar gamli örninn kennir þeim unga, fer hann með hann að klettabrún þar sem hann lemur hann og kennir honum að nota vængi sína. Ég trúi því að þannig læri sonur minn að reyna á sig og fara fram úr væntingum sínum,“ segir He við China Daily News.
Atvikið átti sér stað þegar fjölskyldan var á ferðalagi í New York.

Hann segir drenginn hafa fæðst fyrir tímann sem gæti valdið hreyfihömlun. Til þess að tryggja að drengurinn yrði jafn heilbrigður og aðrir drengir þá útbjó He Liesheng æfingaráætlun þar sem drengurinn er látinn synda, ganga á fjöll og skokka.

Faðirinn segist sannfærður um að þessi uppeldisaðferð eigi eftir að virka því hann sjálfur lauk meistaranámi í menntun og starfaði sem kennari í sjö ár áður en hann gerðist kaupsýslumaður í Nanjing í Jiangsu-héraði í Kína. Hann segir son sinn skora hátt á greindarvístöluprófi eftir þessar æfingar.

Þekktur pistlahöfundur segist þó vera ósammála þessari aðferð. „Foreldrarnir telja sig vera að gera rétt. Ég tel þá hins vegar vera að neyða börnin sín til að skara fram úr til að upphefja sjálfa sig,“ segir Lu Qin, sem starfar fyrir Chinese Teenager News.
Arnarpabbinn er þó ekki nýjasta hugtakið þegar kemur að uppeldisaðferðum. Amy Chua kynnti til sögunnar tígurmömmuna í bók sem hún gaf út í Bandaríkjunum og Kína. Þar lýsir Chua hvernig hún ól upp dætur sínar.

Kaupsýslumaður í Hong Kong, Ziao Baiyou, ákvað að fylgja fordæmi Chua og gaf út bókina Úlfapabbinn þar sem hann segir frá því hvernig uppeldisaðferð hans tryggði börnum sínum inngöngu í virta háskóla.

„Þessir foreldrar auglýsa aðferðir sínar og stæra sig af misnotkuninni,“ sagði Lu Qin.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?