Fæðubótabransinn veltir sextíu milljörðum dollara á ári í Bandaríkjunum. Þetta er stærðar bransi þar sem auglýsingar nýtt líf og bættan árangur eru áberandi í fjölmiðlum og víðar á netinu. Jafnan má sjá auglýsingar þar sem sýndar eru myndir fyrir og eftir átök einstaklinga sem innbyrtu fæðubótarefni eða fylgdu einhverskonar æfingarplani eða kúr frá framleiðanda.
Þessar myndir eru sagðar áhrifamiklar en í meðfylgjandi myndbandi sýnir bloggari nokkur hvernig þú getur náð slíkum fyrir og eftir myndum á fimm klukkutímum.
Fólk á öllum aldri með ístrur og slappa upphandleggi er jafnan borið saman við myndir af magavöðvum sem líkastir eru þvottabretti og æðaberum upphandleggsvöðvum.
Bloggarinn sem sýnir hversu auðveldlega er hægt að ná þessu útliti á fimm klukkutímum heitir Furious Pete. Á vefsíðu sinni segist hann vera heimsins mesta átvagl en hann segir það vera fremur erfitt að trúa því að bætiefni eða æfingarkerfi geti látið fólk líta út líkt og auglýsingarnar gefa til kynna.
Hann sýnir fólki hvernig hægt er að gera slíkar myndir áhrifaríkar og gerir það með því að byrja á seinni myndinni.
Í myndbandinu segir hann áhorfendum að koma sér í ræktina og lyfta lóðum af miklum móð.
Hann segir áhorfendum síðan að fara í ljósabekk og nudda á sig matarolíu.
Hann tekur síðan seinni myndina sem hann segist hafa átt við með hjálp myndvinnsluforritsins Photoshop.
Síðan einbeitir hann sér að fyrir myndinni. Hann ráðleggur áhorfendum að taka sér tveggja tíma pásu og borða allskyns óhollustu.
Síðan stendur hann með bumbuna út fyrir buxnastrenginn og virðist hafa fitnað umtalsvert.
Myndbandið má sjá hér að ofan.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
