ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Segja Íslendinga nota Íslendingabók til að fremja ekki sifjaspell

„Vandamál fyrir fólk að finna sér maka sem er ekki of skyldur þeim“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:26 › 7. febrúar 2012

„Á eyju þar sem 300 þúsund manns búa getur það verið vandamál fyrir fólk að finna sér maka sem er ekki of skyldur þeim,“ segir á vefsíðunni The Mary Sue. Á síðunni er fjallað um Íslendingabók og er hún þar sögð hjálpa Íslendingum við að koma í veg fyrir að fremja sifjaspell.

„Það þykir víst ekki óvenjulegt á Íslandi að komast að því að manneskjan sem þú ert að hitta sé fjórmenningur eða fimmmenningur þinn. Sumum Íslendingum finnst það frekar óþægilegt. En núna geta þeir notast við Íslendingabók til þess að komast hjá því að fremja sifjaspell,“ segir á síðunni The Mary Sue.

Á vefsíðunni er þó bent á að Íslendingar notist við Íslendingabók til þess að rekja ættir sínar aftur en ekki aðallega til að komast hjá því að fremja sifjaspell.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?