ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Lagarfljótsormurinn vekur heimsathygli

Grunsamlegt fyrirbæri í Jökulsá í Fljótsdal
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:52 › 7. febrúar 2012

Myndband af sérkennilegri veru á sundi í Jökulsá í Fljótsdal, sem margir vilja meina að sé Lagarfljótsormurinn sjálfur, hefur vakið heimsathygli síðan það var fyrst sýnt á vef RÚV á fimmtudaginn var.

Það var Hjörtur Kjerúlf sem tók myndband af því sem virðist vera stór ormur sem hlykkjast um ána sem fellur einmitt í Lagarfljót. Liggur því að sjálfsögðu beinast við að ætla að þar fari hið sögufræga skrímsli sem kennt er við fljótið.

Undanfarna daga hefur myndbandið vakið athygli utan landssteinanna, meðal annars á YouTube, vef Huffington Post í Bretlandi og International Business Times svo einhver séu nefnd.

Sögunni fylgir þó líklegasta skýringin sem RÚV varpaði fram á dögunum að þarna væri á ferð netadræsa sem fokið hefði í ána og frosið.

Hreyfingar fyrirbærisins á myndbandinu eru hins vegar það raunverulegar að einhverjir geta leyft sér að trúa þjóðsögunum.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?