ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

„Brjóstin stjórna lífi mínu“

„Stelpurnar öskra á mig“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:26 › 7. febrúar 2012
Ellie Jaycock.

Ellie Jaycock. Mynd Facebook.

„Brjóstin stjórna lífi mínu,“ segir hin sautján ára gamla Ellie Jaycock við Closer-tímaritið. „Stelpurnar bölva mér og fólk öskrar á eftir mér: Þú ert ekki Jordan. Ég veit ekki hvort ég nái að tóra fram að 21 árs aldur,“ segir Jaycock.

Ellie, sem er býr í Cornwall, Bretlandi, þráir ekkert heitara en að láta minnka á sér brjóstin en hún segist vera með nístandi bakverki vegna þeirra.
Læknarnir neita þó að framkvæma aðgerðina fyrr en hún verður 21 árs gömul og brjóstin hætt að stækka.

Hún er 162 sentímetrar að hæð og rúm sextíu kíló en brjóstin hennar eru 6 kíló að þyngd. Hún segir brjóst sín ekki hafa stækkað síðastliðna níu mánuði en læknar neita henni þó um aðgerð.

Þegar hún var tólf ára gömul virtist allt vera eðlilegt. Eftir það byrjuðu þau þó að stækka gríðarlega á skömmum tíma. Þegar hún var þrettán ára fór hún úr brjóstahaldarastærðinni C yfir í DD. Þegar hún var fjórtán ára gömul notaði hún brjóstahaldarastærðina 34F.
Foreldrar hennar fóru með hana til læknis sem sagði hana þjást af juvenile macromastia. Hann lét hana hafa verkjalyf og hormóna til að draga úr vextinum. Lyfin virkuðu þó ekki og var hún komin í stærð H nokkrum mánuðum seinna. Í dag er hún í stærð 34K.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?