ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Óhreinar nærbuxur koma upp um ótrúa maka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:41 › 5. febrúar 2012

Að koma upp um framhjáhald getur verið kostnaðarsamt og tímafrekt en Bandaríkjamenn hafa tekið þá iðju skrefinu lengra líkt og flest annað og bjóða upp á DNA-prófun til að koma upp um svikula maka.

Fyrirtækið The Paternity Lab Center býður fólki upp á aðstoð til að koma upp um framhjáhald. „Oftast kemur fólk til okkar þegar það er ráðþrota. Það nýtir sér okkar tækni til að staðfesta ótta sinn,“ segir sérfræðingur hjá fyrirtækinu, Kip Charles, við bandaríska vefinn The Huffington Post.

„Það eina sem þarf að gera er að koma með einhverja flík, helst nærfatnað, og við getum rannsakað hana. Þar getum við greint sæði eða kvenkyns-erfðaefni,“ segir Kip Charles.

Þjónustan kostar aðeins tvö hundruð dollara, eða um 24 þúsund íslenskar krónur. Flestir karlkynsviðskiptavina fyrirtækisins vilja athuga hvort að sæði úr öðrum karlmanni sé í nærbuxum maka þeirra. Kvenkynsviðskiptavinirnir vilja kanna hvort að erfðaefni úr öðrum konum sé að finna í nærbuxum maka þeirra.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?