Fyrrverandi einkabílstjóri og dyravörður tónlistarmógúlsins Alan Meltzer eru nú ríkir menn en þeir erfðu stóran hluta af eignum hans, sem nema um 10 milljónum bandaríkjadala eða um 1.2 milljörðum íslenskra króna.
Einkabílstjórinn segir um fyrrverandi vinnuveitanda sinn: „Hann var svo indæll maður. Hann var alltaf að grínast. Hann leit aldrei niður á neinn.“ Meltzer, sem var forstjóri Wind-Up Records plötufyrirtækisins, dó í fyrra eftir að hafa skilið við eiginkonu sína. Dyravörðurinn fékk um 500.000 dali eða um 61,5 milljónir íslenskra króna.
„Hann var örlátur maður,“ segir dyravörðurinn. „Þetta kom á óvart,“
Það sem fyrrverandi eiginkona Meltzers hefur að segja um hann er gjörólíkt því sem einkabílstjóri hans og dyravörður segja en hún tók ekki arf eftir hann: „Hann má færa hverjum sem hann vill í arf. Mér gengur vel. Mér gæti ekki verið meira sama. Ef hann vill gefa rónunum það, getur hann gefið rónunum það. Hann gæti riðið nunnu. Mér er drullusama. Hann má gefa hverjum sem er peningana sína. Við erum skilin. Maðurinn er dauður.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
