ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Kafnaði á fölsku tönnunum í kynlífsleik

Karlmaður á áttræðisaldri lenti í slysi með vændiskonu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:05 › 3. febrúar 2012
Falskar tennur. Aldraður maður í Taívan kafnaði á sínum í hita leiksins.

Falskar tennur. Aldraður maður í Taívan kafnaði á sínum í hita leiksins. Mynd: Photos.com

74 ára gamall karlmaður frá Nýju-Taipei í Taívan lést eftir að hann gleypti óvart fölsku tennurnar sínar í hita leiksins eftir hálftíma með 62 ára gamalli vændiskonu.

Vændiskonan hringdi umsvifalaust á sjúkrabíl en maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Í frétt Telegraph um málið er haft eftir vændiskonunni að maðurinn hafi skyndilega fallið aftur fyrir sig í rúminu. „Augu hans voru opin en hann lá bara hreyfingarlaus. Ég reyndi að hrista hann og vekja hann.“

Ólöglegt er að selja vændi í Taívan en ekki að kaupa það. Undanfarin ár hafa verið uppi áform um að lögleiða vændi að einhverju leyti.
Ekki fylgir fréttinni hvort vændiskonunni verði refsað en fari svo á hún yfir höfði sér sekt sem nemur allt að 100 þúsund íslenskum krónum.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?