ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Innbrotsþjófur makaði sjálfan sig í hnetusmjöri og súkkulaði

Sá að sér og notaði kvefmeðal til að biðjast afsökunnar
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:45 › 3. febrúar 2012
Andrew fékk að fara í sturtu áður en myndin var tekin

Andrew fékk að fara í sturtu áður en myndin var tekin Daily Mail

  • Verslunin í Neon Kentucky

    Verslunin í Neon Kentucky Daily Mail

Þegar lögregla var kölluð að matvöruverslun í Kentucky í Bandaríkjunum blasti við helst til einkennileg sjón. Karlmaðurinn sem lögreglumennirnir áttu að handtaka var nakinn og allur útataður í súkkulaði og hnetusmjöri.

Andrew Toothman, 22 ára, hefur ekki getað sagt lögreglumönnum hvers vegna hann hegðaði sér svo einkennilega í versluninni. Hann stal engu fé og í raun var ekki hægt segja að hann hefði stolið neinu – en hann hafði svosem enga vasa til að stinga á sig hlutum þar sem hann stóð allsnakinn fyrir framan lögreglumennina.

Andrew hafði hinsvegar makað súkkulaði og hnetusmjöri um alla verslunina og á sig sjálfan auk þess sem hann hafði tekið nokkur slökkviliðstæki og tæmt þau.

Þessi óvenjulegi innbrotsþjófur hafði þó greinilega séð að sér í miðju innbroti þar sem hann hafði opnað lyfjapakkningu og notað töflurnar til þess að stafa „fyrirgefðu“ á verslunargólfið. Hann er nú í gæsluvarðhaldi vegna innbrotsins, skemmdanna og fyrir að hafa sært blygðunarkennd annarra með nekt sinni.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?