Nýjasta auglýsing dýraverndunarsamtakanna PETA fer fyrir brjóstið hjá mörgum en í auglýsingunni er látið að því liggja að þeir sem ekki neyti dýraafurða, eða borði aðeins svokallað „vegan“ matarræði séu talsvert betri í rúminu. Svo kröftug eiga ástarlot þeirra sem aðhyllast slíkt matarræði að vera að makinn verður stórskaddaður á eftir. Í auglýsingunni sést kona vera afar illa haldin og vart gagnfær eftir að kærasti hennar fór að borða á þennan hátt.
Auglýsingin er ein af fjölmörgum auglýsingum PETA sem þykja óviðeigandi. Fram að þessu hafa kynþokkafullar auglýsingar PETA ekki fengist birtar, vegna þess að þær þykja særa blygðunarkennd áhorfenda. Yfirleitt eru dulin skilaboð PETA þau að það sé rangt að borða kjöt, en rétt að borða grænmeti og ávexti. PETA hefur hins vegar fengið gagnrýni fyrir að nota kynþokka til að vekja athygli. Sitt sýnist hverjum og hægt er að horfa á auglýsinguna hér að ofan.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
