ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Svona bjó maðurinn í gaddfreðnum bílnum í tvo mánuði

Ótrúlegar myndir sýna aðstæður mannsins sem enginn saknaði
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:30 › 20. febrúar 2012
Það verður að teljast ótrúlegt að maðurinn hafi lifað þetta af

Það verður að teljast ótrúlegt að maðurinn hafi lifað þetta af Mynd Skjáskot DAILY MAIL

  • Mikil ísing var í bílnum

    Mikil ísing var í bílnum Mynd Skjáskot DAILY MAIL

  • Maðurinn dvaldi í bílnum í tvo mánuði

    Maðurinn dvaldi í bílnum í tvo mánuðiMynd Skjáskot DAILY MAIL

Fara í myndagallerý →

Meðfylgjandi myndir sýna ótrúlegar aðstæður sem Peter Skyllberg, fjörutíu og fjögurra ára gamall Svíi, hafði búið við þegar hann fannst nær dauða en lífi eftir að hafa verið fastur í bíl sínum í nærri því tvo mánuði. Á myndunum sést hversu mikil ísing var í bílnum, en hann var á kafi í snjó og fannst fyrir einskæra tilviljun að vegfarandi fann Skyllberg í slæmu ásigkomulagi í bíl sínum í Umea.
Skyllberg mun hafa misst bílinn utanvegar, en vegurinn er þar að auki mjög fáfarinn.

Ekki verður annað sagt en það sé hreint ótrúlegt að maðurinn hafi lifað þetta af, en svo virðist sem enginn hafi saknað hans. Hann mun hafa verið ný hættur með unnustu sinni þegar hann hvarf og hann á þar að auki enga fjölskyldu að telja og því voru fáir sem leituðu hans.

Fram kemur í fréttum Telegraph að maðurinn hafði ekki borðað neitt í tvo mánuði nema snjó. Mun snjórinn hafa breytt bílnum í snjóhús og þannig komið í veg fyrir að Skyllenberg myndi hreinlega frjósa í hel.

„Hver sem er getur lifað af mánaðarsvelti, svo lengi sem hann hefur eitthvað að drekka,“ segir læknirinn Ulf Segerberg við Telegraph. „Ef þú býrð yfir líkamsfitu þá getur þú lifað mun lengur,“ segir Segerberg.

Breska ríkisútvarpið BBC hefur það eftir eftir lækni að Skyllberg hafi lifað af með því að fara í einhverskonar dvala.
Segerberg sagði í samtali við The Telegraph að lífslíkurnar hafi ekki verið miklar hjá Skyllberg.

„Á hverjum vetri heyrum við af fólki sem hefur frosið. Það er afar sjaldgæft að menn þrauki við aðstæður líkt og Skyllberg var í,“ segir Segerberg.

Skyllberg hefur neitað fjölmiðlum um viðtöl en hefur komið þeim skilaboðum áleiðis að honum líði mun betur eftir að honum var komið til bjargar.

Tengdar fréttir
Fastur án matar í bíl í tvo mánuði
Umfjöllun Daily Mail




Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?