ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Stúlkum víxlað á fæðingardeildinni

Vilja 48,6 milljónir króna í bætur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 20. febrúar 2012

Tvær rússneskar konur hafa höfðað mál á hendur sjúkrahúsinu í Belyaevsk í Rússlandi. Önnur kvennanna, Olga Buyanova, ákvað að láta framkvæma DNA-próf þar sem hana grunaði að hún væri ekki líffræðileg dóttir foreldra sinna. Niðurstöður DNA-rannsóknarinnar voru skýrar og reyndist grunur hennar á rökum reistur.

Konan hafði samband við forsvarsmenn sjúkrahússins sem fóru að gramsa í gögnum og kanna hvaða konur hefðu verið á fæðingardeildinni sama dag og móðir hennar. Leitin skilaði árangri og kom í ljós að Olgu og annarri stúlku, Nataliu Arhipova, hefði verið víxlað á fæðingardeildinni. Höfðu foreldrar Olgu fengið Nataliu í hendurnar og öfugt. Konurnar hafa nú höfðað mál þar sem þær krefjast þess að fá 48,6 milljónir króna samanlagt í bætur.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?