Kim Jong-un, nýr leiðtogi Norður-Kóreu, er strax farinn að sinna embættisverkum föður síns heitins, hins umdeilda Kim Jong-il. Hann er farinn að skoða hluti í heimalandinu.
Undanfarin ár hafa vefsíður tileinkaðar sérkennilegum og afar sviðsettum heimsóknum Kim Jong-il um ríki sitt notið mikilla vinsælda. Voru þar birtar fjölmargar myndir, raunverulegar jafnt sem „fótósjoppaðar,“ undir yfirskriftinni: Kim Jong-il skoðar hluti.
DV.is hefur meira að segja birt myndir af Kim Jong-il að skoða hluti.
Nú er rekinn mikill áróður í N-Kóreu um ágæti Kim Jong-un þar sem hann er kynntur sem mikill leiðtogi sem leiða muni þjóðina úr þeim hremmingum sem almenningur í landinu býr við, svo sem matarskort.
Reuters hefur fengið margar myndir af heimsóknum sonarins útvalda í Norður-Kóreu og hafa nýjar síður af honum að skoða hluti stungið upp kollinum í netheimum.
Hér er brot af því besta úr skoðunarleiðangri Kims um Pyongyang.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 















Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
