Meðan margir íslenskir athafna- og auðmenn brugðu á það ráð að færa eignir sínar yfir á eiginkonur sína þá hefur milljarðamæringurinn John Goodman frá Texas ákveðið að fara aðrar leiðir. Goodman, sem er 48 ára, ákvað nefnilega að ættleiða 42 ára gamla kærustu sína. Hún er því löglega orðin dóttir hans.
Sérfræðingar telja Goodman hafa ákveðið að gera þetta til að verja eignir sínar fyrir skaðabótakröfu fjölskyldu manns sem hann er sakaður um að hafa orðið að bana þegar hann ók undir áhrifum áfengis.
Hin vægast sagt furðulega ættleiðing þýðir að kærustudóttir hans, Heather Laruso Hutchins, á nú rétt á þriðjungi 200 milljóna dala sjóðs sem Goodman stofnaði fyrir tvö börn sín úr fyrra sambandi. Goodman komst í álnir þegar hann erfði loftkælibúnaðarveldi föður síns en hefur verið verið ákærður fyrir manndráp og fer málið fyrir dóm í næsta mánuði. Goodman á yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi.
Dómarinn í manndrápsmálinu sagði ættleiðinguna súrrealíska aðgerð.
Þar sem ættleiðingin hefur verið samþykkt sem lögleg er nú í þokkabót lagalega óljóst hvort Goodman megi sofa hjá kærustunni sinni sem nú er orðin dóttir hans. Lögspekingar viðurkenna hreinlega að þeir viti það ekki, enda málið einstakt.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
