ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

„Hypjaðu þig af fjallinu mínu“

Fjallabúi hræðir líftóruna úr kofaeigendum
14:42 › 19. febrúar 2012

Dularfullur fjallabúi ráfar nú um óbyggðir Utah-fylkis í Bandaríkjunum en maðurinn er eftirlýstur af lögreglu fyrir fjölda innbrota. Hann brýst inn í kofa á svæðinu og stelur mat, áfengi og skotvopnum. Maðurinn hverfur síðan aftur í óbyggðirnar.

Lögreglan á svæðinu hefur leitað að manninum í fimm ár en hann gengur enn laus. Ekki hefur verið greint frá ofbeldi af höndum mannsins en undanfarið hefur hann látið greipar sópa um tóma kofa, hleypt af byssum þar inni og svívirt trúarlíkneski. Í einum kofa skildi hann eftir miða sem á stóð: „Hypjaðu þig af fjallinu mínu.“

Einn lögreglumannanna sem leitar nú að manninum segir: „Þú myndir ekki vilja rekast á þennan mann.“ Kona sem býr í hjólhýsi á svæðinu segir: „Hann er að hræða líftóruna úr kofaeigendum. Núna eru allir með byssur á sér.“

Í desember náðist mynd af hinum grunaða en á henni sést dökkhærður maður í felulitum, mundandi riffil.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?