ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Rændi barni: „Ég hélt að hann væri herra fullkominn“

Notaði konu sem hann kynntist á netinu til að eignast barn
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:11 › 16. febrúar 2012

Kristy Gaffney, einstæð móðir frá Philadephiu í Bandaríkjunum, í leit að ást, var sannfærð um að hún hefði fundið hinn eina rétta á netinu. Maðurinn var allt sem hún hafði óskað sér. Hann var dularfullur, kallaði sig Ed og Kristy, sem var þá 29 ára, heillaðist af honum þrátt fyrir að hafa sínar efasemdir um málið.

„Ég hélt að hann væri herra fullkominn,“ segir hún í viðtali við NBC10 sjónvarpstöðina.
En Ed reyndist vera allt annað en drauma maki og Kristy situr nú eftir með sárt ennið og berst fyrir réttinum til að hitta barnið sitt. Hún segir hann hafa rænt því með klækjabrögðum.

Heillaði hana upp úr skónum
Hann var myndarlegur og hafði peningavit. Hann sagðist hafa starfað fyrir leyniþjónustu Bandaríkjanna og væri hluti af einni ríkustu fjölskyldu Bandaríkjanna, DuPont fjölskyldunni. Hann var góður og skemmtilegur og þau hófu samband. Eftir nokkra mánuði fór hann að tala um hjónaband, en hann sagði henni einnig að fyrrverandi eiginkona hans hefði ekki geta átt börn. Þau giftu sig þó ekki en fljótlega varð Kristy ófrísk.

Ed lagði hart að henni um að hún færi í fóstureyðingu, en svo skipti hann skyndilega um skoðun. Eftir að barnið fæddist kom hann með gögn og bað hana að skrifa undir. Það væri mikilvægt og til að sanna ef eitthvað kæmi upp á að barnið væri hans.
Hún skildi ekkert í þessum pappírum og skrifaði undir – annað kom ekki til greina, enda treysti hún honum.
Barnið og Kirsty bjuggu á heimili hennar á meðan að Ed gerði upp íbúðina sína. Hann vildi gera allt tilbúið fyrir þau svo þau gætu flutt þangað. Þau skiptust á að sinna barninu og hann var frábær faðir. En einn daginn þegar hann átti að koma með barnið heim til hennar skilaði hann sér ekki. Á nokkrum dögum féll spilaborgin.

Ed hét í raun Emmitt Dippold og var giftur. Þau hjónin gátu ekki eignast barn en voru langt komin með að ættleiða barn þeirra Kristy. Atburðarrásin er í raun illskiljanleg en í ljós kom að Kristy hafði skrifað undir ættleiðingarpappíra og hafði veitt Emmit fullt forræði. Þá hafði hún heimilað eiginkonu Emmitt að ættleiða barnið.

„Ég hugsaði með mér: „ertu að grínast?“. Ég trúði því ekki að þau gætu verið svona kaldlynd,“ segir Kirsty
Kirsty greip til sinna ráða og barðist fyrir barninu sínu. Hún vann fyrstu lotu og hefur nú fullt forræði, en Emmit og eiginkona hans hafa áfrýjað.

Emmitt segir að Kirsty ljúgi; henni hafi verið fullkunnugt um aðstæður og hafi með góðri samvisku afsalað sér móðurhlutverkinu. Þar að auki vissi hún um konuna hans og hann hafi aldrei beðið hana um að fara í fóstureyðingu. Hann vildi þó ekki tjá sig um málið þegar að NBC10 leitaði til hans.

Fréttaskýringu NBC10 má sjá hér fyrir neðan.

Visit msnbc.com for breaking news, world news, and news about the economy



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?