„Ég hélt hann væri tómur,“ sagði James Labrecque í samtali við bandarísku fréttastofuna WMC-TV en hann seldi peningaskáp á uppboðssíðunni eBay fyrir 122 dollara, sem nemur fimmtán þúsund íslenskum krónum, en skápurinn innihélt 26 þúsund dollara í reiðufé, eða um 3,2 milljónir króna.
„Ég hristi hann og fann ekki fyrir neinu. Ég hélt að hann væri tómur, ég bauð hann þv á eBay,“ sagði Labrecque.
Hann bað kaupandann um að fá hluta af peningunum til baka en fékk ekki þá ósk uppfyllta.
Labrecque býr í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Kaupandinn býr í Bartlett en hann fór með skápinn til málmiðnaðarmanns sem opnaði skápinn þar sem peningurinn leyndist.
„Mér finnst ég vera heimskasti fábjáni veraldarinnar,“ sagði Labrecque.
Í tölvupóstsamskiptum hans við kaupandans vitnaði kaupandinn í stefnu Labrecque á eBay en þar segir: „Þú færð það sem þú sérð, ekki hægt að skila – engin endurgreiðsla.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
