Nærri ár er liðið síðan heimspressan greindi frá manninum sem er með hálft höfuð. Nú hefur maðurinn loksins útskýrt hvers vegna svo er.
Bandaríska fréttastofan Miami New TImes var sú fyrsta til að greina frá manninum eftir að hún birti myndir sem lögreglan tók af honum við handtöku hans.
Maðurinn greinir nú frá því hvers vegna það vantar nærri því helminginn af höfði hans.
Maðurinn ,sem svarar nafninu Halfy, ráðleggur áhorfendum að halda sig frá vímuefnum. „Ég ók undir áhrifum vímuefna. Ég ók á súlu, flaug út um framrúðuna og lenti á höfðinu,“ segir Halfy í myndbandinu og sýnir á sér höfuðkúpuna. „Þess vegna á aldrei að blanda saman vímuefnaneyslu og akstri. Ekki gott krakkar, ekki gott.“
Halfy, sem er sagður heita réttu nafni Carlos Sosa eða Carlos Rodriguez, heldur því síðan fram í myndbandinu að forseti Bandaríkjanna neyti eiturlyfja. Hann staðfestir einnig ást sína á stóru kvenfólki.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
