Óskarsverðlaunahafinn Rachel Weisz er notuð sem andlit snyrtivörufyrirtækisins L´ Oreal. Þar er hún andlit vöru sem er sögð hægja á öldrun húðarinnar. En núna hefur auglýsingaeftirlit Bretlands bannað þessa auglýsingu fyrirtækisins því hún þykir vera mjög ýkt og afvegaleiða neytendur.
Weisz auglýsir vöruna Revitalift Repair 10. Þeir sem sáu um eftirvinnslu myndarinnar af Weisz þykja hafa farið offari í því að lagfæra andlit Weisz.
Þessi breska leikkona er ekki sú fyrsta þar sem andlitið er lagað með aðstoð tölvutækninnar. Er það gert til að láta líta út fyrir að þeir sem auglýsa vöruna séu mjög unglegir af því að nota svokölluð yngingarkrem.
Auglýsing fyrir hrukkukrem frá Olay, þar sem notast var við andlit fyrirsætunnar Twiggy, var bönnuð árið 2009. Í fyrra var auglýsing frá L´Oreal með Juliu Roberts og Christy Turlington bönnuð en auglýsingin þótti afar afvegaleiðandi.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
