ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

10 ára keyrði í skólann á heimilisbílnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:15 › 31. janúar 2012

10 ára gamall franskur skólapiltur var stöðvaður af lögreglu þar sem hann ók bifreið á leið í skólann. Pilturinn reyndist hafa misst af skólabílnum og greip því til örþrifaráða og stal Reunault Megane bifreið föður síns til að komast á réttum tíma í skólann. Hann var þó ekki einn á ferð heldur greip bekkjarbróður sinn með sér í ferðina.

Eftir um tveggja kílómetra leið keyrði drengurinn út af og endaði á umferðarskilti. Þegar lögregla reyndi að fá upp úr drengnum hvað honum gengi eiginlega til sagði hann skilningslausum lögreglumönnunum :„Ég var í belti“.

Til allrar hamingju voru drengirnir báðir ómeiddir eftir þetta ferðalag, en drengurinn gæti þó verið ákærur fyrir að keyra án leyfis og fyrir að skemma umferðarskiltið.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?