Bandaríski þáttastjórnandinn Steve Wilkos er þekktur fyrir að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og virðist vera nokkuð óhræddur við að ræða hvaða mál sem er. Hann stýrir viðtalsþætti sem sýndur er á daginn í Bandaríkjunum og þykir hann líkjast mjög þáttum Jerry Springer. Steve er fyrrum lögreglumaður og sjóliði og kallar því ekki allt ömmu sína. En honum blöskraði þó heldur betur þegar feðginin sem sýnd eru í meðfylgjandi myndböndum komu í þáttinn til hans.
Ástæða er til þess að vara viðkvæma við áframhaldandi lestri og meðfylgjandi myndböndum.
Feðginin Morgan og Britney höfðu átt í ástarsambandi í tvö ár þegar þau komu í þáttinn til Wilkos í fyrra vor. Sjálfur Jerry Springer hafði afþakkað komu þeirra í þáttinn til sín og taldi þetta ekki við hæfi.
Britney og Morgan höfðu aldrei átt í hefðbundnu feðginasambandi og kynntist Britney honum aðeins tímabundið þegar hún var barn. Hún segir að móðir sín hafi ekki leyft Morgan að hitta sig. Þegar Britney varð sextán ára urðu þau vinir á Myspace samskiptasíðunni og ástarsamband þeirra hófst.
Þau neita því bæði að hér sé um einhverskonar ofbeldi að ræða og segja að samband þeirra byggist á einlægri ást. Í þætti Wilkos kemur hinsvegar í ljós að Morgan hefur verið að halda framhjá Britney sem kemst í mikið uppnám við þessar fréttir og greinir frá því að hún gangi líklegast með barn þeirra.
Þáttastjórnandinn, Steve Wilkos, reynir í myndbandinu að koma Britney til aðstoðar og býður henni alla þá sálfræðiaðstoð og stuðning sem hún þarfnast en hún þvertekur fyrir það og segist una sátt við sitt.
Þeir sem vilja fræðast meira um samband feðginanna er bent á meðfylgjandi myndbönd.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
