ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Undrabarn með augu sem sjá í myrkri

Kalla hann kattadrenginn
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:18 › 29. janúar 2012

Það telja margir að Nong Youhui sé afar sérstakur strákur, en hann hefur þann einstaka hæfileika að hann sér jafnvel í myrkri og birtu. Augu hans eru alla jafna skærblá en í myrkri verða þau stingandi græn líkt og í ketti. Þetta veldur því að drengurinn getur lesið í myrkri og sér jafn vel í slíkum aðstæðum og um hábjartan dag.

Litli Nong Youhui er þó aðeins lítill drengur og hefur því takmarkaðan skilning á fárinu sem er í kring um hann. Hann þekkir þó ekkert annað og virðist kippa sér lítið upp við það. Hann hefur verið kallaður „kattardrengurinn“ í breskum fjölmiðlum og hefur vakið mikla athygli.

Nong fæddist með leukodermia, sem þýðir að augu hans eru einstaklega viðkvæm fyrir sterku ljósi. Augu hans eiga því það á hættu að skemmast í mikilli birtu. Í myrkri glóa þau og hafa læknar hingað til talið að hann myndi hreinlega vaxa upp úr þessum sjúkdómi. „Þeir sögðu að þetta yxi af honum. Augun myndu hætta að glóa og verða svört líkt og augu annarra Kínverja- en þau hafa aldrei gert það,“ segir Ling Youhui, faðir Nong en þeir feðgarnir búa í Dahua í suður Kína.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá nánari upplýsingar um Nong Youhi og augun hans.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?