ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Hjó mann til bana - át auga hans og heila

Hrottalegt morð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:58 › 29. janúar 2012
Tyree Lincoln Smith.

Tyree Lincoln Smith.

Hinn 35 ára Tyree Lincoln Smith í Connecticut-fylki Bandaríkjanna er grunaður um að hafa myrt mann hrottalega og borðað síðan auga hans og hluta af heilanum. Smith var handtekinn í Flórida en þangað hafði hann flúið eftir umrætt morð.

Lík fórnarlambsins fannst í yfirgefnu húsi í Connecticut á föstudaginn. Frænka Smith hafði samband við lögreglu vegna morðsins en hún sagði að Smith hafi heimsótt hana í desember og sagst vilja fá „blóð á hendur sínar“ áður en hann færi aftur í yfirgefna húsið, þar sem hann bjó.

Næsta dag sneri Smith aftur til frænku sinnar, alblóðugur og haldandi á exi. Hann sagði henni að hann hafi verið sofandi á verönd yfirgefna hússins þegar ókunnugur maður vakti hann og bauð honum inn í húsið. Þá sagðist hann hafa höggvið manninn í andlitið og hausinn með exi og tekið síðan auga hans, brot úr hauskúpunni og hluta af heila hans með sér. Svo borðaði hann líkamsleifarnar í kirkjugarði í nágrenninu.

Frænka hans greindi lögreglunni frá því að hún hafi gert móður Smith viðvart. Móðir hans lét síðan lögregluna vita að þeir ættu að athuga yfirgefna húsið og sagði þeim að sonur hennar ætti við bága andlega heilsu að stríða.
Smith flúði til Flórida en lögreglan og ættingjar hans náðu að hringja í hann. Í símtalinu viðurkenndi hann að hafa haldið sig í yfirgefna húsinu og viðurkenndi einnig að hafa sagt ættingja sínum að hann hafi drepið manninn.
Smith hefur verið handtekinn og standa yfirheyrslur nú yfir.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?