Nýjasta stórstjarna veraldarvefsins er hundurinn Ozzy en hann hefur magnað jafnvægisskyn. Á meðan flestir hundar elta ketti eða naga gömul bein hefur þessi hundur mikla hæfileika í fimleikum.
Ozzy varð frægur eftir að steinhissa vegfarandi tók upp myndband af hundinum haldandi jafnvæginu á bakfótunum á mjórri keðju. Hann setti myndbandið inn á Youtube og á einum degi fékk það meira en 80.000 áhorf.
Eigandi Ozzy er hinn 50 ára trésmiður Nick Johnson frá Norwich í Bretlandi. Nick eyðir allt að fimm tímum á dag í að æfa hundinn. Meðal annars getur Ozzy sótt farsíma eigandans og haldið jafnvægi á götuskiltum.
„Ég var örlítið hræddur fyrst af því að ég hafði aldrei átt hund áður og margir sögðu að hundaþjálfun væri mjög erfið. En Ozzy var dásamlegur og það var mjög létt að þjálfa hann.“ segir Nick.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
