Breskur nemandi kennir offramboði á ódýrum drykkjum um drykkjulæti sín eftir að hafa séð myndband af sér dansandi nöktum í uppblásinni laug í næturklúbbi.
Myndbandið fór sem eldur um sinu í netheimum. Breska dagblaðið The Daily Mail greinir frá máli nemandans, sem er stúlka, en nafn hennar er ekki gefið upp í fréttinni.
Myndbandið gekk á milli Twitter-notenda en á vef breska dagblaðið er hegðun stúlkunnar sögð kristalla drykkjumenningu Breta, og þá niðurlægingu sem henni fylgir.
Þessi tvítuga stúlka tók þátt í blautbola keppni sem var liður í keppninni Missbehaviour, eða fröken óþekk. Á meðan keppninni stendur eru drykkirnir á hlægilegu verði, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins Daily Mail.
Á meðan öðrum þátttakendum þótti nóg að fara úr stuttermabolnum fór umrædd stúlka úr öllum fötunum.
Eftir að stúlkan sá viðbrögðin við myndbandinu daginn eftir keppnina notaði hún samskiptasíðuna Twitter til þess að réttlæta þessa hegðun. „Já, ég varð full og fór úr fötunum. Við gerum öll hluti sem við sjáum eftir og það er ekkert sem ég get gert í því núna.“ Hún skrifaði síðan aftur á Twitter að hún hefði týnt undirfötum sínum, eyrnarlokkum og hefði ekki fengið fimmtíu punda verðlaunaféð sem henni var lofað.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
