Uppeldi barna getur vafist fyrir mörgum og erfitt getur verið að feta sig áfram.
Þegar foreldrar skilja geta málin flækst til muna eins og raunin var fyrir átta ára gamlan ástralskan dreng sem situr nú uppi með foreldra sem aðeins geta rætt saman í gegn um lögfræðinga.
Ástandið er svo alvarlegt að faðir drengsins fékk lögfræðing sinn til að koma skilaboðum til móðurinnar. Skilaboðin voru einföld: Drengurinn ætlaði ekki að mæta í afmælisboð sem honum hafði verið boðið í. Flóknara var það nú ekki, en drengnum hafði verið boðið í afmæli og vildi alls ekki fara, að sögn pabbans. Pabbi hans ákvað því að bjóða stráknum á bóndabæ í staðinn.
Lögfræðingur móður drengsins var snöggur að svara, drengurinn ætti að fara í afmælið, enda væri veislan haldin skamma vegu frá bóndabænum. Ennfremur hefði drengurinn hlakkað til að fara og hafði sagt móður sinni það. Þeir ættu bara að drífa sig feðgarnir.
Málið leystist aldrei og hefur nú þetta grafalvarlega mál lent á borði dómara í Ástralíu. Dómarinn í máli foreldranna er vægast sagt ósáttur og segir málið vera tímaeyðslu. „Þetta er verst fyrir barnið. Hvernig geta svona einföld skilaboð orðið að svona flóknu máli?“ spurði dómarinn Paul Howard foreldranna.
„Ákvörðun um afmælisveislur á ekki að þurfa ívilnanir lögfræðinga. Hér hafið þið sett drenginn í hræðilega stöðu,“ sagði hann og hafði engan skilning á því hvernig málið hafði endað á borði hans.
Hann ákvað að faðir drengsins hefði átt að senda drenginn í afmælið– sem var að sjálfsögðu löngu búið að halda – og bað foreldrana að hafa það í huga í framtíðinni þegar þau deila um afmælisveislur.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
