ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Læknar segja hana drepa sig á kjúklinganaggaáti

Hefur ekki borðað neitt annað í fimmtán ár
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:12 › 26. janúar 2012
Stacey Irvine með kjúklinganagga frá McDonalds.

Stacey Irvine með kjúklinganagga frá McDonalds. Mynd skjáskot af vef Daily Mail.

Læknar hafa varað Stacey Irvine við því að ruslfæðið sé að drepa hana. Þessi sautján ára stúlka segist ekki hafa borðað neitt annað en kjúklinganagga síðastliðin fimmtán ár.

Hún segist hafa ánetjast þessum mat eftir að móðir hennar keypti nagga fyrir hana á McDonalds þegar hún var tveggja ára.
Læknarnir uppgötvuðu þetta þegar stúlkan var flutt á sjúkrahús eftir að hafa misst meðvitund í vinnunni, en hún starfar í verksmiðju í Castle Vale, Birmingham á Englandi.

Á vef breska dagblaðsins The Daily Mail er greint frá því að Irvine hafi aldrei bragðað grænmeti eða ávexti. Þegar læknar skoðuðu hana á sjúkrahúsinu kom í ljós að hún var með bólgnar æðar í tungunni og að hún þjáist af blóðleysi.
Hún var sett á vítamínkúr við komuna á sjúkrahúsið en þrátt fyrir að hafa verið vöruð því að geta dáið sökum mataræðis segist hún ekki geta staðist löngunina í kjúklinganagga.

Irvine segist heldur fá sér nagga á McDonalds en fari stundum á KFC-skyndibitastaðinn. „Það er að renna upp fyrir mér að þetta er óhollt,“ sagði hún í samtali við breska dagblaðið The Sun.

Hún segist njóta þess að deila tuttugu nöggum og frönskum með kærasta sínum. Þrátt fyrir þetta mataræði er hún ekki svo feit. Hins vegar er heilsa hennar ekki góð. Hana skortir vítamín og önnur næringarefni og innbyrðir allt of mikið af salti. Þetta veldur háum blóðþrýstingi og veiku ónæmiskerfi hjá henni.

Mataræði hennar eykur einnig líkur á að hún fái hjartaáfall eða slag, sér í lagi þegar hún eldist. Í einum skammti af McNuggets, sem inniheldur sex kjúklinganagga, eru 280 kaloríur, sautján grömm af fitu, sextán grömm af kolvetnum og fjórtán grömm af próteinum.
Í litlum skammti af frönskum eru 230 kaloríur, ellefu grömm af fitu, 29 grömm af kolvetnum og þrjú grömm af próteinum.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?