ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Heyrði mömmu eiga mök – hringdi á lögguna

Krafðist þess að vera færð á kristilegt barnaathvarf
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:43 › 24. janúar 2012
15 ára stúlku frá Flórída þótti ekki boðlegt að þurfa að hlusta á ástaratlot mömmu sinnar.

15 ára stúlku frá Flórída þótti ekki boðlegt að þurfa að hlusta á ástaratlot mömmu sinnar. Mynd úr safni

Fimmtán ára gömul stúlka frá Panama City í Flórída fékk nóg af því að heyra móður sína sofa hjá og hringdi á neyðarlínuna til að tilkynna ástaratlotin.

Mamman hafði verið að njóta ásta með kærasta sínum en það var þó ekki þannig að óhljóðin hafi verið slík að stúlkan hafi óttast um velferð móður sinnar og því leitað til lögreglunnar.

Hún sagði lögreglumönnum að henni þætti það vanvirðing við sig að þurfa að hlusta á mömmuna eiga mök við kærastann um miðja nótt. Það sem meira er krafðist stúlkan þess að lögreglumennirnir færðu hana á kristilegt barnaathvarf.

Lögreglumönnum tókst þó að tala stúlkuna til sem ákvað loks að hún nennti ekki að fara á athvarfið þar sem svo stutt væri þangað til hún þyrfti að mæta í skólann.



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?