Sem ung stúlka lofaði Charlotte Baird sér því að sænga ekki hjá karlmanni fyrr en hún hefði fundið þann eina rétta. Hún átti þó ekki von á því að það tæki hana meira en þrjátíu ár að hitta þann eina rétta.
Charlotte starfar sem leikhússtjóri í Leigh-On-Sea, Englandi, og verður fjörutíu ára gömul í maí. Breska dagblaðið The Daily Mail greinir frá því að hún hafi aldrei kysst karlmann innilega.
Hún er sögð elska líf sitt, eiga marga góða vina og vera stolt af því að vera hrein mey. Hún segist þó vera að leita að hávöxnum karli sem sé ungur í anda og elski dýr.
Hún segist aðeins hafa farið á tvö stefnumót á síðastliðnum tíu árum en segist þó ekki vera farin að örvænta og að hana langi alls ekki í börn.
„Að lifa skírlífi hentar mér. Ég hef aldrei stundað kynlíf og sakna þess því ekki. Ég elska líf mitt og þó ég hafi ekki verið með karlmanni finnst mér það ekki skrýtið. “
Hún segir margar stúlkur lenda í ástarsorg því þær séu með mönnum sem kunna ekki að meta þær. „Mér finnst ég örugg og stjórna lífi mínu með því að lifa skírlífi.“
Hún segir þessa ákvörðun ekki vera vegna þess að hún óttist náin kynni. „Sumir segja mig gera þetta til þess að forðast sársauka, sem er rangt. Ég geri þetta af því ég trúi að það sé rétt.“
Hún segir þetta hafa fælt karlmenn frá sér. „Sumir þeirra halda að ég skipti fljótlega um skoðun en þegar þeir átta sig á því að svo er ekki, hlaupa þeir í burtu.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
