Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Michael West frá Fond du Lac í Wisconsin í Bandaríkjunum bauð upp á einhverja frumlegustu og jafnframt ótrúverðustu skýringu sem lögreglumenn þar um slóðir hafa nokkru sinni heyrt þegar hann var handtekinn fyrir heimilisofbeldi á dögunum.
„Það var draugur sem gerði þetta,“ sagði West við lögreglumenn þegar þeir fundu eiginkonu hans alblóðuga í miklu uppnámi.
Eiginkonan hafði hins vegar aðra sögu að segja. Hún tjáði lögreglumönnum að West hefði kýlt hana og reynt að kyrkja hana eftir rifrildi um peningavandræði þeirra.
West brást að auki ókvæða við þegar lögreglumenn ákváðu að handtaka hann og hefur hann nú verið ákærður fyrir líkamsárás, óspektir og fyrir að veita mótþróa við handtöku.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
