ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Kona á þrítugsaldri í lífstíðarbanni: „Þú ert of gömul til að vera í þessu“

Fjögurra barna móðir gráti nær að kvöldi nýársdags: „Ég var niðurlægð“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:44 › 23. janúar 2012
Lisa Woodman stillir sér upp í dæmigerðum klæðnaði sem hún fer út að skemmta sér í.

Lisa Woodman stillir sér upp í dæmigerðum klæðnaði sem hún fer út að skemmta sér í. Mynd skjáskot af vef Daily Mail.

Þessari konu hefur verið meinaður aðgangur að skemmtistöðum í heimbæ sínum eftir að henni var tjáð að hún væri of gömul til þess að klæðast efnislitlum klæðnaði.

Hún heitir Lisa Woodman og er 28 ára gömul og móðir fjögurra barna. Henni var meinaður aðgangur að þremur stöðum í Worcester, Englandi, því klæðnaður hennar þótti ekki sæma aldri hennar, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins The Daily Mail.
Í viðtali við Daily Mail segist hún njóta þess að flagga líkamsvexti sínu en heldur því fram að klæðaburður hennar sé mun íhaldssamari en þeirra kvenna sem eru yngri hún.

Hún var gráti nær að kvöld nýársdags þegar dyraverðir við Mode-næturklúbbinn hleyptu henni ekki inn og sögðu við hana: „Þú ert of gömul til að vera í þessu.“

Hún má heldur ekki fara inn á hina tvo næturklúbbana í bænum sem heita Tramps og Velvet.

„Ég var niðurlægð. Ég hugsa vel um mig og er aðeins 28 ára gömul. Ég vil njóta virðingar líkt og annað fólk. Ég hringdi í næturklúbbinn til þess að kvarta en þeir hlustuðu ekki á mig. Dyraverðirnir sögðu mig vera í lífstíðarbanni ef ég myndi ekki breyta klæðaburði mínum. Þetta er hneyksli.“



Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?