ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Barnið kom í heiminn á rúntinum

Móðirin ber sig fagmannlega að
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:46 › 23. janúar 2012

Myndband sem sýnir konu eignast barn í framsæti bifreiðar síðastliðinn föstudag hefur vakið verðskuldaða athygli á myndbandavefnum LiveLeak. Barninu virðist hafa legið töluvert á að koma í heiminn en þegar upptakan byrjar er fæðingin nánast yfirstaðin.

„Ég stöðva bílinn, ég stöðva bílinn. Guð minn góður,“ segir ökumaðurinn sem gera má ráð fyrir að sé faðir barnsins. Eins og sést á myndbandinu gengur fæðingin eins og í sögu og ber móðirin sig afar fagmannlega að miðað við aðstæður. Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan.




Veistu um skrýtna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?