Eins og sjá má var naglinn ekki beint á góðum stað. Myndin er vottuð af Christ Medical Center. Skjáskot af vefsíðunni: http://www.sfexaminer.com
Karlmaður frá Illinois í Bandaríkjunum má prísa sig sælan að ekki fór verr þegar hann skaut tæplega níu sentímetra nagla inn í heilann á sér miðjan. Maðurinn kenndi sér vart meins og það var ekki fyrr en tveimur dögum eftir atvikið sem hann fór á sjúkrahús.
Dante Autullo íbúi Orland Park í Illinois skaut sjálfan sig slysaskoti með naglabyssu síðastliðinn þriðjudag. Þegar hann þreifaði á höfuðkúpu sinni hélt hann að naglinn hefði bara rétt strokið höfuð hans þar sem sárið var svo lítið. Hann fór því beint í næsta verkefni og mokaði snjó það sem eftir var dags.
En á miðvikudeginum var manninum orðið ansi óglatt og hann fór því á spítala. Eftir rannsóknir og röntgenmyndir kom í ljós að naglinn var í miðjum heila hans og aðeins millimetrum munaði að hann hefði skotist inn í þann hluta heilans er stýrir hreyfingum.
Fáir trúa því að Dante hafi getað gengið um og spjallað í tvo daga með nagla á þessum stað og töldu margir að meðfylgjandi mynd væri bara grín þegar hann setti myndina á Facebook síðu sína. Læknar á Christ Medical Center og Hope Children‘s spítalanum í Illinois votta að Dante segir satt um málið. Dante sem er fjölskyldumaður og á fjögur börn fór í aðgerð snemma á fimmtudagsmorgun og eru læknar mjög bjartsýnir á bata hans. Fjarlægja þurfti hluta af höfuðkúpu hans og koma fyrir títaníum plötu þar í staðinn. „Þetta er kraftaverk,“ segir unnusta Dante, Gail Glanzer, „Bara ótrúlegt.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
