Eftirspurnin meðal ríka fólksins, í efnahagsuppganginum í Kína, eftir lífvörðum er orðin slík að í Peking er í fyrsta skipti farið að þjálfa kvenmenn til að sinna því hættulega starfi.
Mikil sýning fór fram á æfingum Tianijao Special Guard/Security Consultant Ltd. í Peking í síðustu viku. Þar kom fram samkvæmt Reuters-fréttastofunni að 20 konur, nær allar háskólagengnar, muni gangast undir 8-10 mánaða strangt þjálfunarprógramm. Sú þeirra sem útskrifast með bestan árangur úr æfingabúðunum verður því næst send til frekari þjálfunar í International Security Academy í Ísrael.
Meðal þess sem boðið var upp á fyrir myndavélarnar var undarleg æfing þar sem þjálfarar brutu flöskur á höfðum kvennanna. Það þykir þó fremur ólíklegt að þarna hafi verið raunverulegar flöskur enda má sjá á meðfylgjandi myndum þá splundrast þær afar Hollywood-lega á enni þeirra.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 








Símkerfi RÚV nær hruni vegna mistaka við sýningu á Leiðarljósi
Rjúpa reynir innbrot
Þriðji Bandaríkjamaðurinn með holdétandi bakteríu á skömmum tíma
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
73 ára kona klífur Everest
